Bahama eyyyjjjjja....

Þetta lag.... dúdda mía... mig langar alltaf að skella mér í bikiníið og skella mér á ströndina þegar ég heyri þetta lag.... Algjör snilld og kemur mér alltaf í gott skap Cool

Annars er ég með gleðifréttir fyrir ykkur gott fólk... ég er loksins, loksins búin að selja íbúðina mína. Ég var náttúrulega löngu búin að afhenda hana en núna er þetta loksins að detta í gegn.... Alveg órtúlegt með þetta mál... það mátti ekki bíða með að afhenda íbúðina í 5 daga eða þangað til ég kæmi heim til eyja, pabbi, Sigrún og Ágústa urðu að tæma allt og ganga frá öllu!! Svo er þetta svona!!! Ekkert gerist fyrr en 2 og hálfum mánuði seinna!! Alveg ótrúlegt!!

Eitt ráð til þín ef þú ætlar að selja íbúðina þína..... EKKI láta sama fasteignasala sjá um kaup og sölu!! fáðu sitthvorn aðilan í þetta!!! Ég get lofað að það gengur betur!!

Það er reyndar alveg fáránlegt að sami aðilinn megi sjá um bæði kaup og sölu á sömu fasteigninni. Sá aðili getur ekki haft hagsumi seljanda og kaupanda fyrir brjósti. Þetta tíðkast hvergi annarsstaðar í heiminum en á Íslandi.

Annars er allt gott að frétta hjá okkur... Skjöldur  er reyndar búin að vera með streftokokka (veit ekkert hvernig þetta er skrifað) Það er mjög findið samt því hann hrýtur venjulega mjög mikið og stundum eins og hann sé andsetinn en núna þegar hann er með þessa sýkingu er alveg eins og eitthvað huges skrímsli sé að reyna að brjótast út úr honum.. hehe... maður á kannski ekki að hlægja af þessu en mér finnst þetta samt skondið. Hann er samt komin á pensilin núna og er allur að koma til þessi elska.

Ég er að versla mér eitt stykki fjórhjól núna. Nánast nýtt, keypt nýtt í okt 2007. Haldiði að ég verði ekki töffari að transporta á því út um alla sveit Tounge

Svo eru Eyjar á döfinni. Kellingin ætlar að skella sér um hvítasunnuhelgina og kíkja á famelíuna Grin Það verður æðislegt að knúsa alla... ég hef ekki séð mömmu mína síðan í febrúar og mér finnst eins og það séu 3 ár síðan!! Hryllilegt alveg Crying

En ég held ég sé búin að bulla nóg hér í bili... veriði svo dugleg að bulla í kommentin því það er svo skemmtilegt Wink

Maður dagsins: Gary Dourdan Gary Dourdan leikari í CSI. Var handtekin greyið vegna gruns á vörslu alskyns ólöglegra efna. EFNIlegur sá tappi og alveg úber svalur.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hvernig hjól ertu að kaupa ?

Hvað fékstu fyrir íbúðina ?

Hlynur Már (IP-tala skráð) 30.4.2008 kl. 21:39

2 identicon

Hææ elskan mín ;* Vildi bara segja þér að ég lifði gærkvöldið af, lét stressið bara fjúka eins og þú sagðir mér að gera ;* haha... ji hvað ég hlakka til að koma til þín í sveitina, það er ennþá betra að gera það þegar sumarið er komið held ég... mm elska sveitir og elska sól :D

Ætla sko að fá að prófa fjórhjólið!!! úff draumur í dós!!

Jæja ... heyrumst fljótt, love you ;*****

Ernan þín (IP-tala skráð) 1.5.2008 kl. 17:06

3 Smámynd: Kristín Halldórsdóttir

heyrðu ég keypti kawazaki 360, mjög fínt hjól og fæ það líklega í kvöld  og svo fékk ég 7,5 fyrir íbúðina og bílskúrinn, sem er mjög gott og ég er fegin að hafa losað mig við hana áður en allt fór til fjandans

En Erna mín ég vissi að þú gætir þetta!! Bara gera eins og ég sagði "vera þú sjálf" og þá getur ekkert klikkað  ég elska þig þegar þú ert þú sjálf og þá gera það allir hinir líka :**** Og já þú verður bara að fara að koma til mín... Koma í fjórhjólatúr með mér og á hestbak og eitthvað  love love

Kristín Halldórsdóttir, 2.5.2008 kl. 10:27

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Kristín Halldórsdóttir

Höfundur

Kristín Halldórsdóttir
Kristín Halldórsdóttir
létt klikkuð og koxuð á því.... fáið ykkur kaffi og glóðvolgar kleinur!
Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Nýjustu myndir

  • vm
  • Sigrúní Sumarstúlkukeppninni
  • Ágústa á Hard Rock
  • Sigurþórog Sigrún
  • Gaupi, Bóbó, Anna, Gísli, Sigrún og ég

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku:
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku:
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband