4.5.2008 | 22:10
Kvalafullar veislur....
Það hefur komið nokkrum sinnum fyrir á minni stuttu æfi að ég hef verið gestur í mjög svo kvalarfullum veislum.... Þá er ég nú ekki að meina að fólk pinti mig og meiði en manni líður ekkert vel en er samt viðstaddur eins lengi og þörf krefur, kurteisinnar vegna. Svo verður maður að finna rétta tímann til að fara.... maður veltir því fyrir sér í smá stund hvort að maður sé ekki búin að stoppa alveg nógu lengi og tekur svo á skarið og segir "jæja... ég ætla að fara að koma mér" eða "ég verð að drífa mig, þarf að fara í búð fyrir lokun" eða eitthvað í þá áttina.....
Veit ekki hvort þið kannist við þetta en ég hef nokkrum sinnum lent í þessu...
Svo hef ég líka lent í veislum þar sem maður vill helst ekkert fara og verður allra síðastur úr húsi...
Svona er lífið hverfullt
En ég er komin með fjórhjólið í hlað og það svínvirkar alveg. Maður spítist alveg áfram á þessari græju og er ég alveg búin að ná góðum tökum á þessu... Tók reyndar smá tíma en æfingin skapar meistarann
heheh....
Ég hjólaði svo mikið í gær að ég ætlaði ekki að hafa mig uppúr rúminu í morgun að sökum harðsperra!! En það hafðist og er ég nú lítið búin að hjóla í dag vegna verkja og rigningar... fór smá hring áðan og var ekki lengi að mígblotna í gegn um hjólagallan... Svo er líka ekkert gott að fá regndropa á nefið á 90 km hraða....
En annars er allt gott að frétta í sveitinni... Ómar flutti út frá okkur í dag, kallinn ætlar að fara að búa inná Akureyri fram á haustið allavega.... Þannig að ég, Skjöldur og Petra erum bara orðin 3 í búi.
Svo er Skjöldur að fara austur á miðvikudagsmorgun og ég til Eyja á fimmtudaginn.... Það verður voða gott að knúsa liðið sitt og vera aðeins hjá múttunni sinni
Ég ætla ekki að hafa þetta lengra í bili... hafiði það gott þangað til næst
Maður dagsins: Er að þessu sinni 94 ára karlmaður í San Francisco sem ákvað að skjóta leigusala sinn, sem hafði hótað að bera hann út vegna vanskila á leigu, samkvæmt lögreglunni í borginni.... Merkilega ákveðin og sniðugur eldri maður sem ákvað að leysa þennan vanda á óvenjulegan hátt
Um bloggið
Kristín Halldórsdóttir
Tenglar
Vinir
fólkið mitt
- Andrea Gísladóttir drea babe
- Anna Bína litla snúllan :*
- Anna Rún Austmar yndislegust
- Arnar Hólm mágur minn
- Ágústa Halldórsdóttir litla syss...
- Ásta Steinunn
- Erla Skarp beibí ;)
- Erla Smella keflvíkingurinn ógurlegi
- Erna mín my angel
- Esther Bergsdóttir krúttípútt
- Eyjabloggarar linkar á eyjabloggsíður
- Friðrik Ágúst Frikkinn
- Helga Björk Georgsdóttir krúsídúlla
- Jónatan (bowie) Gíslason Tanninn
- Páll Magnús Guðjónsson Pallinn minn
- Ragnar Örn Ragnarsson mágur minn
- Séra Ólafur Jóhann Borgþórsson Óli Jói töffari
- Sigrún H og Sigrún B snúllur
- Sigurþór Hjörleifsson jæja Sigga
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.1.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Hæhæ... kvittkvittkvitt :)
Erla Smella (IP-tala skráð) 7.5.2008 kl. 14:42
skemmtu þér í eyjum gamla...... á þessari hryllilegu eyju..
Arnar Hólm Ármannsson, 7.5.2008 kl. 22:47
ææii arnar þegiðu !! Þér er ekki boðið á þjóðhátíð !!
Takk fyrir kvittið
Kristín Halldórsdóttir, 8.5.2008 kl. 10:06
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.