Þótt lífið sé skjálfandi lítið gras...

má lesa í kvæði eftir Matthías..... Grin

Já ég er bara í stuði í dag.... ljómandi gott veður hér á norðurlandinu, þrátt fyrir smá fönn yfir öllu. Ég get ekki sagt ykkur hvað ég hlakka mikið til þegar grasið fer að grænka, lömbin fara að jarma og fuglarnir að syngja sumarlögin sín Cool 

Svo eru nú ekki margir dagar þangað til maður hverfur af landi brott... það eru bara 31  dagur í þetta hjá okkur Cool bjór á svölunum, rölt á ströndinni og sólbað í tvær heilar vikur!!! Hvað verður það næs??

 Ég held að það skoði enginn þetta blessaða blogg hjá mér... allavega eru voðalega sjaldan komment... Arnar Hólm er eini sem lætur vita af sér hérna reglulega og hún Erna mín... Þannig að það er alveg spurning um að slútta þessu bara í bili...

Sjáum til...

Annars er bara allt gott að frétta... ég fór í Bónus í gær eftir vinnu og gjörsanlega missti mig í að versla, keypti unghrossa piparsteik, grillkartöflur, ferskt grænmeti, blómkál í blómkálssúpu og fullt, fullt af kræsingum Tounge Svo var bara allsherjar veisla í Nesi... Arnar og Haukur borðuðu hjá okkur og ég held að engin hafi farið svangur út!! Eða ég vona ekki....

Ég nenni ekki að hafa þetta lengra í bili.... meira á morgun Smile og Helga mín ef þú lest þetta þá sendi ég þér smá rembing Grin

Maður dagsins: Haukur Hólm Ármannsson.... Algjört yndi þessi drengur, þykir mjög vænt um hann og hann hefur alltaf reynst mér vel!!!

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hey ég kvitta nú nánast alltaf fyrir mig þú ert bara svo dugleg að blogga að maður hefur bara ekki undan :)

En það er nú samt gott að þú sért svona hress og smá uppástunga hér. Vist þið eruð að fara út hvernig væri þá að kíkja á mann í leiðinni þar sem bý bara á lóð flugvallarins?

Erla Ásmundsdóttir (IP-tala skráð) 28.2.2008 kl. 20:16

2 Smámynd: Kristín Halldórsdóttir

já.. það er sko alveg spurning að gera það  förum reyndar út snemma að morgni en það er spurning um að kíkja á þig deginum áður  og já sorry... þú ert líka alltaf dugleg að commenta og ég kannski alltof dugleg að blogga... hehehe..... Kossar og knús

Kristín Halldórsdóttir, 29.2.2008 kl. 10:02

3 identicon

komment smomment Kristín :D   Svo er ekki smá fönn yfir öllu, heldur hreinlega, nánast eða svona hér um bil skaflar!

 kvitterí kvitt

Sunna

Sunna Hólm (IP-tala skráð) 29.2.2008 kl. 10:27

4 identicon

Þið eruð velkomin til mín hvernær sem er og ef þið viljið þá er nóg pláss hér til þess að gista áður en þið farið...

En þið ráðið annars alveg sjálf hvað þið gerið það yrði samt bara mjög gaman að fá ykkur í heimsókn. 

Erla Ásmundsdóttir (IP-tala skráð) 29.2.2008 kl. 14:41

5 Smámynd: Kristín Halldórsdóttir

æghj... Sunna þetta er fönn... ekki SKAFLAR  Og já takk fyrir það erla mín... við skoðum þetta

Kristín Halldórsdóttir, 29.2.2008 kl. 15:52

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Kristín Halldórsdóttir

Höfundur

Kristín Halldórsdóttir
Kristín Halldórsdóttir
létt klikkuð og koxuð á því.... fáið ykkur kaffi og glóðvolgar kleinur!
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • vm
  • Sigrúní Sumarstúlkukeppninni
  • Ágústa á Hard Rock
  • Sigurþórog Sigrún
  • Gaupi, Bóbó, Anna, Gísli, Sigrún og ég

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (4.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 32
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 32
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband